laugardagur, október 25, 2008
laugardagur, október 11, 2008
Ég var víst búin að lofa því að vera duglegri að blogga þannig að það er eins gott að standa við stóru orðin.
Síðasta vika var hræðileg eins og allir íslendingar ættu að vita. Maður gerði fátt annað en að fylgjast með fréttum og vera þunglyndur yfir ástandinu.
Það var því voða notalegt að vakna í dag og þurfa ekki að heyra í allan dag hvað þessi og hinn eru að segja og gera.
Við hjónaleysin drifum okkur bara út og fórum og versluðum fyrstu jólagjafirnar. Fórum svo heim og ég bakaði lummur sem við borðuðum með bestu lyst.
Svo eldaði ég þetta líka eðal lasagne í kvöldmatinn.
Undanfarið hefur verið "kreppufæði" í matinn hjá okkur, semsagt maturinn úr frystinum. Fólk almennt vorkennir okkur ekki mikið þar sem maturinn í frystinum okkar er mestmegnis hreindýrakjöt og fuglabringur... Ég skil ekkert í þessu!
Á morgun er svo afmæli hjá Söru litlu (sem er nota bene orðin 13 ára gömul, sjæææææææt!!!) og væntanlega bara andlegur undirbúningur fyrir næstu viku. Ég vona bara að hún verði skárri en sú síðasta. Sammála?
fimmtudagur, október 02, 2008
Mikið vona ég að hún Jessica "I don't have a brain" Simpson fari að hverfa af sjónarsviðinu fljótlega.
Hún hefur átt það til að gleðja mig undanfarin ár en í ca 90% tilfella þá langar mig að berja hana.
Ég var búin að leggja þetta "Angels" mál alltsaman á hilluna en nei nei. Birtist mín ekki bara í Dancing with the stars og slátrar laginu gjörsamlega frá a til ö. Aldrei aftur í lífinu mun ég heyra hana syngja þetta lag, aldrei. Vonandi mun ég þó ekki þurfa að myrða mörg sjónvarpstæki og hátalara til að fá því framgengt.
Semsagt, ef þið fáið einhvern tímann ákaflega mikla löngun til að pirra mig þá er þetta kjörin leið.
þriðjudagur, september 30, 2008
Þvílík gleði!!!!!!!!
laugardagur, september 27, 2008
miðvikudagur, september 24, 2008
sunnudagur, september 21, 2008
Jæja, er kominn tími á blogg segiði?
Lífið gengur bara sinn vanagang þessa dagana. Dagskrá hvers dags er ca að vinna, borða, sofa og horfa á sjónvarpið. Rosa spennandi ekki satt?
Ég bara er einhvern veginn ekki að fíla það að haustið sé komið og þetta rok og þessi helvítis rigning eru engan vegin að hafa góð áhrif á mig. Ég kem sjálfri mér í fyrsta lagi ekki framúr á morgnanna. Ég snooza örugglega að meðaltali í svona klukkutíma á hverjum morgni. Hver kannast ekki við það?!?!?! Svo nenni ég ekki að gera neitt eftir vinnu heldur, þarf meiriháttar átak til að koma sjálfri mér aftur í skóna ef þess þarf en vonandi fer þetta ógeðsveður að hætta og þá kannski verð ég aðeins ferskari manneskja...
Annars er útlandaþráin aðeins farin að hrjá mig aftur. Væri meira en til í að fara á einhvern heitan stað í nokkra daga. Eða til London. Ég elska London. Annars er Ameríka næst á dagskránni. Bara spurning hvenær það gerist. Dollarinn er nú ekkert að bjóða upp á það núna en vonandi jafnar hann sig fljótlega. Annars fer maður sjálfsagt ekkert meira á þessu ári. Það er nú ekkert ókeypis að fara eitthvað eins og staðan á krónunni er í dag en ekki orð um það meir. Þessi fjármálastaða hér á klakanum er way to depressing!
Jæja, þið vitið þá amk núna að ég er lifandi... Held ég láti þetta gott heita í bili. Ég lofa að blogga aftur fljótlega. Enga leti hér...
Chao!
föstudagur, ágúst 22, 2008
laugardagur, ágúst 16, 2008
Hversu jömmí getur einn maður verið?
Þetta lag er uppáhaldið mitt þessa dagana og ekki er það verra þegar maður horfir á myndbandið með :) Fertugur og freaking hot svo ekki sé meira sagt!
föstudagur, júlí 18, 2008
fimmtudagur, júní 26, 2008
þriðjudagur, júní 17, 2008
Vid eyddum gaerdeginum ì Sviss en lètum thad gott heita.
Komum hingad til Garmisch-Partenkirchen upp ùr hádegi ì dag og byrjudum á thvì ad finna okkur gistingu. Drifum okkur svo á röltid.
Thad var rigning thear vid komum ì dag en nùna sitjum vid ì sòl og blìdu med kòk og bjòr og tjillum. Vonandi verdur svo blìda á morgun lìka. Vid eigum thad svo sannarlega inni eftir alla rigninguna!
sunnudagur, júní 15, 2008
Nùna erum vid stödd í Svartaskògi og erum bùin ad finna okkur gistingu.
Klàrudum Mòsel ì gær og skodudum Trier adeins. Fòrum svo thadan adeins yfir til Luxemburgar og Frakklands àdur en vid héldum hingad.
Vid keyptum okkur helling af frönsku kexi í Strassbourg og drifum okkur svo thadan.
Erum svo ì dag bùin ad sjà staerstu gauksklukku í heimi og hæsta foss Thýskalands en hann var nù ekki merkilegur ad mìnu mati. Ég var mun spenntari yfir íkornunum sem ad voru à vappinu vid stìginn, algjör krùtt!
föstudagur, júní 13, 2008
fimmtudagur, júní 12, 2008
miðvikudagur, júní 11, 2008
Jaeja. Thá erum vid komin ì Mòsel dalinn og ætlum ad slaka á hèr á morgun og sennilega næsta dag lìka. Hèr er ágætis vedur en engin sòl ì augnablikinu. Vonandi verdur stadan önnur á morgun!
Vid fòrum aftur til Heidelberg ì morgun og skodudum kastalann thar. Gamli baerinn ì Heidelberg er rosa flottur en hann er lìka pakkfullur af tùristum.
Vid drifum okkur thvì áfram til Mainz. Thar lögdum vid bìlnum og fòrum ad fà okkur ad borda. Vid bordudum bratwurst sem var bara ljòmandi gòd. Sìdan fòrum vid adeins ì H&M og svo ì Saturn thar sem èg versladi mèr Wii Fit.
Vid komum svo ì Mòsel dalinn um kl fimm ì dag og fòrum ad leita ad gistingu. Thad var audvelt og meira ad segja mjög òdýrt. Vid drifum okkur svo ùt ad borda ádur en vid skridum upp á herbergi.
Vid vorum svo ad enda vid ad horfa à Portùgali vinna Tèkka mèr til mikillar gledi.
Kossar og knùs á lìnuna :)
þriðjudagur, júní 10, 2008
Dagur 5 byrjadi ì adidas outletinu og tòk thad 2 og hálfan tìma ad klára thann pakka. Vid misstum okkur nù ekkert en komum ùt med sitthvort skòparid og svo eitthvad smálegt. Thadan hèldum vid ì àtt til Stuttgart með smà rùnti ì gegnum Nurnberg. Svo thegar vid vorum komin á hradbrautina til Stuttgart fòr èg eitthvad ad gramsa ì veskinu hans Helga og spurdi hann svo: "Helgi, hvar er visa kortid thitt?" Thad hafdi semsagt ordid eftir ì adidas bùdinni thannig ad vid urdum ad gjöra svo vel ad snùa vid og saekja thad.
Thegar vid fòrum svo ad nàlgast Stuttgart beygdum vid utaf hradbrautinni ì leit ad gistingu. Eftir sennilega 5 smábaei og mikla leit duttum vid à gistiheimili sem átti laust herbergi sem ekki kostadi hálfan handlegg. Thar sofnadi èg vaert yfir Frakkland-Rùmenía og svaf ad mestu til ad verda 8 ì morgun. Thegar èg segi "ad mestu" thà meina èg ad èg vaknadi á korters fresti vid bjölluna ì kirkjuturninum! Okkur fannst thetta thò bara nokkud krùttlegt og vorum ekkert pirrud :)







